Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
Fundinn sátu: Elsa Lára Arnardóttir formaður, Kristjana Helga Ólafsdóttir aðalmaður, Björn Guðmundsson aðalmaður, Helgi Pétur Ottesen aðalmaður, Kristján Sveinsson varamaður, Helga Harðardóttir varamaður, Hallveig Skúladóttir hjúkrunarforstjóri og Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri.
Fyrir var tekið:
1. Kosning í stjórn
Lagt fram bréf frá bæjarstjórn Akraness, dags. 2. júlí 2018, þar sem fram kemur að eftirtaldir hafa verið kjörnir í stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis:
Aðalmenn: Elsa Lára Arnardóttir, formaður, Kristjana Helga Ólafsdóttir og Björn Guðmundsson.
Varamenn: Karitas Jónsdóttir, Einar Brandsson og Kristján Sveinsson.
Einnig lagt fram bréf frá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, dags. 26. júní 2018, þar sem fram kemur að Helgi Pétur Ottesen hafi verið kjörin aðalmaður og Helga Harðardóttir varamaður í stjórn Höfða.
Kristjana Helga Ólafsdóttir var kjörin varaformaður stjórnar og Björn Guðmundsson ritari stjórnar.
2. Starfsemi Höfða
Framkvæmdastjóri og hjúkrunarforstjóri kynntu starfsemina og stöðu mála.
Fundarmenn fóru í skoðunarferð um heimilið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.00