Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)
6. fundur í tómstunda- og forvarnarnefnd var haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu, þriðjudaginn 5.nóvember 2002, og hófst hann kl. 18:00.
______________________________________________________________
Mættir: Hjördís Hjartardóttir, formaður,
Katrín Rós Baldursdóttir (ritaði fundargerð),
Hallveig Skúladóttir,
Eydís Líndal Finnbogadóttir.
Sviðsstjóri Tóm-
stunda og forvarnasviðs: Aðalsteinn Hjartarson
______________________________________________________________
Fyrir tekið:
1. Upplýsingar frá sviðsstjóra.
2. Úthlutun 2.000.000 kr. styrks vegna barna- og unglingastarfs.
Drög að úthlutun styrkja til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akranesi samþykkt. Tillaga verður send bæjarráði.
3. Umfjöllun um nýtt fyrirkomulag styrktarsjóða.
Starfshópur leggur fram á fyrsta fundi ársins 2003 drög að reglugerð fyrir nýja styrktarsjóði.
4. Vinnufundur
Vinnufundur verður haldinn þann 18. janúar 2003 kl. 17.00 til að ræða stefnumótun nefndarinnar.
5. Önnur mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30.