Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)
69. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi, Stillholti 16 -18, þriðjudaginn 20. desember 2006 og hófst hann kl.20:30.
Mætt á fundi: Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, formaður
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Silvia Llorens Izaguirre
Helgi Pétur Magnússon
Sæmundur Halldórsson,
Jón Þór Þórðarson, áheyrnarfulltrúi ÍA
Einnig sat Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri fundinn og ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Umsóknir starf verkefnisstjóra æskulýðs- og forvarnarmála. Umsóknarfrestur rann út 8. desember sl. Alls bárust 10 umsóknir. Ákveðið var að formaður ásamt sviðsstjóra kölluðu umsækjendur viðtals eftir eftir því sem ástæða var til. Fimm umsækjendur voru boðaðir til viðtals og einn þeirra dró umsóknina til baka áður en til viðtals kom. Nefndarmönnum voru kynntar niðurstöður viðtala, skoðanir umsagnaraðila og helstu þætti úr umsóknum. Sviðsstjóra falið að leggja tillögu nefndarinnar fyrir bæjarráð.
2. Önnur mál. Ekkert lá fyrir undir liðnum önnur mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:50