Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)
95. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í Þorpinu þriðjudaginn 9. desember 2008 og hófst hann kl. 17:15.
Halldór Jónsson,
Jónína Margrét Sigmundsdóttir
Sævar Haukdal,
Jón Þór Þórðarson, áheyrnarfulltrúi ÍA
Einnig sat Hörður Jóhannesson fundinn ásamt Helgu Gunnarsdóttur sem ritaði fundargerð.
?Á undanförnum árum hefur daglegt líf breyst mikið, meðal annars á þann veg að dagleg hreyfing landsmanna hefur minnkað. Þetta á við um alla aldursflokka. Breyting þessa nýja lífmynsturs er meðal stærstu forvarnarmála sem nú er glímt við. Með því að auka daglega hreyfingu barna og unglinga með aukinni tómstunda- og íþróttaiðkun eflist líkamsþroski þeirra um leið og heilsufar batnar. Jafnframt vekur það áhuga þeirra á heilbrigðu líferni og gefandi tómstundastarfi.
Næsta ár stóð til að styrkupphæðin yrði 10.000.000 á lokaári samnings Akraneskaupstaðar við ÍA um þessa styrki. Lagt er til að því verði breytt og styrkupphæðin verði á þennan veg næstu fimm árin:
Árið 2009 |
Kr. 14.000.000 |
Árið 2010 |
Kr. 15.000.000 |
Árið 2011 |
Kr. 17.000.000 |
Árið 2012 |
Kr. 18.000.000 |
Árið 2013 |
Kr. 20.000.000 |
2. Afrekssjóður. Fulltrúar meirihlutans lögðu fram tillögu um að komið yrði á fót afrekssjóði. Gerð er tillaga um að Akraneskaupstaður leggi kr. 2,5 milljónir í upphafi, ÍA leggi einnig fram stofnframlag og sömuleiðis yrði leitað eftir framlagi frá fyrirtækjum. Sjóðunum yrði skipuð sérstök stjórn. Markmið sjóðsins væri að styðja við afreksfólk sem oft þarf að bera mikinn kostnað vegna æfinga og keppnisferða. Lagt er til við bæjarráð að fulltrúa frá ÍA og fulltrúa frá Akraneskaupstað verði falið að leggja fram tillögu að reglugerð fyrir sjóðinn ef bæjarráð fellst á erindið. Tillaga meirihlutans samþykkt einróma.
3. Ávísun á öflugt tómstundastarf. Fulltrúar meirihlutans lögðu fram tillögu um að upphæð ?Ávísunar á öflugt tómstundastarf? yrði hækkuð verulega. ?Ávísun á öflugt tómstundastarf? hefur nú verið send til allra nemenda grunnskóla sl. þrjú haust. Upphæðin hefur verið kr. 5.000.- frá upphafi. Ríflega 60% ávísanana eru nýttar. Í október sl. lagði nefndin til við bæjarráð að ávísunin mundi framvegis einnig gilda fyrir 16 og 17 ára og var það samþykkt. Með vísan til rökstuðnings sem bókaður er í lið 1. fundargerðarinnar er bæjarráð hvatt til að hækka upphæð ávísunarinnar umtalsvert. Reikna má með að nýtingarhlutfall hækki og eðilegt að reikna með að 80% ávísana skili sér. Gerð er tillaga um að ávísunin hækkar í kr. 20.000 og þá þarf að reikna með 20.000.000 á fjárhagsáætlun næsta árs. Fundarmenn eru sammála um að það muni skipta verulegu máli fyrir heimilin á Akranesi að fá þennan styrk til að hindra brottfall úr æskulýðs- og tómstundastarfi þegar efnahags-þrengingarnar fara að koma meira í ljós. Ef að heildarupphæð nýttra ávísana nær ekki 20 milljón króna þá er að lagt til að afgangurinn komi til úthlutunar til íþrótta- og tómstundafélaga skv. sömu reglum og gilda um beina styrki til þeirrar starfsemi. Nefndin telur að teknu tilliti til ofangreinds þá eigi ávísunin að vera send út í ársbyrjun og hafa gildistíma til 1. desember sama árs.