Fara í efni  

Velferðar- og mannréttindaráð

229. fundur 23. júlí 2024 kl. 15:15 - 18:00 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Kristinn Hallur Sveinsson formaður
  • Einar Brandsson varaformaður
  • Aníta Eir Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
  • Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældarþjónustu fullorðinna
Fundargerð ritaði: Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs
Dagskrá

1.Heilsuefling eldra fólks

2402299

Tillaga að samstarfi við ÍA varðandi heilsueflingu eldra fólks á Akranesi í samræmi við nýlega samþykkta stefnu um öldrunarþjónustu á Akranesi.
Samráðsfundir hafa verið undanfarna mánuði milli starfsmanna á velferðar- og mannréttindasviði og framkvæmdastjóra íþróttabandalags Akraness (ÍA) um fyrstu skrefin í átt að aukinni heilsueflingu eldra fólks á Akranesi. Laufey Jónsdóttir tengiráðgjafi, Daníel Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja og Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sitja fundinn undir þessum lið.

Velferðar- og mannréttindaráð er fylgjandi því að farið verði í tilraunaverkefni í samstarfi við ÍA, til áramóta, um að sinna heilsueflingu eldra fólks á Akranesi. ÍA annast allt utanumhald verkefnisins, auglýsingar, undirbúning, þjálfun, eftirfylgni og mælingar. Miðað er við að verkefnið hefjist í september. Framlag Akraneskaupstaðar verður allt að kr. 900.000 á mánuði, heildar framlög vegna ársins 2024 verða allt að kr. 3.600.000. Fjármögnun verkefnisins vegna ársins 2025 er vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

Sviðsstjóra er falið að gera samning við ÍA um framkvæmd verkefnisins að fengnu samþykki bæjarráðs.

Erindinu er vísað til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00