Aðalskipulag Akraness 2021-2033 - breyting Smiðjuvellir, Kalmansvellir
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 14. maí 2024 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 vegna Smiðjuvalla og Kalmansvalla samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkti 27. Júní 2024 deiliskipulagsramma um stefnumörkun um svæðið vegna Smiðjuvalla.
Breyting á aðalskipulagi felst í að athafnasvæði AT-144 og verslunar- og þjónustusvæði VÞ-146 eru sameinuð sem íbúðarsvæði með blandaðri byggð, ÍB-144. Lóð bensínstöðvar, VÞ-143, og tengivirki Landsnets, I-145, verða ekki hluti íbúðarsvæðisins og nær breyting þessi ekki til þeirra lóða.
Í deiliskipulagsramma Smiðjuvalla er forsögn fyrir deiliskipulagsgerð og nánari grein gerð fyrir stefnu um það umbreytingarferli sem framundan er á svæðinu sem verður ekki fastákveðið í aðalskipulagi. Deiliskipulagsrammi Smiðjuvalla
Samhliða aðalskipulagsbreytingu þessari er deiliskipulagsrammi auglýstur.
Breytingartillagan verður til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar https://www.akranes.is/ og á Skipulagsgátt https://www.skipulagsgatt.is/issues/2024/584 frá 10. júlí 2024 til 26 ágúst 2024. Aðalskipulag Akraness 2023-2033
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til og með 26. ágúst 2024. Skila skal skriflegum athugasemdum á skipulagsgátt https://www.skipulagsgatt.is/issues/2024/584.
Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar