Vefur Akraneskaupstaðar tilnefndur til vefverðlauna SVEF
21.01.2015
Vefur Akraneskaupstaðar sem settur var í loftið í september á síðasta ári hlaut tilnefningu til vefverðlauna SVEF sem besti opinberi vefurinn. Það er sjö manna dómnefnd sem vefakademían skipar á hverju ári sem velur fimm vefi í 15 flokkum og í ár bárust um 150 tilnefningar í heildina. Aðrir vefir sem eru tilnefndir í sama flokki og vefur Akraneskaupstaðar eru vefir Lögreglunnar, Rannís, Samgöngustofu og Markaðsstofu Vestfjarða.
Það er fyrirtækið Stefna sem hannaði vefinn í samstarfi við Akraneskaupstað en Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri leiddi vinnuna fyrir hönd kaupstaðarins. Verðlaunaafhendingin fer fram föstudaginn 30. janúar í Gamla Bíó í Reykjavík.