Akranesviti nú kominn á heimskortið
08.01.2019
Akranesviti er nú kominn á heimskortið, en í umfjöllun The Guardian völdu lesendur miðilsins hann sem einn af sérstökustu og forvitnilegustu ferðamannastöðum í heimi.
Vitarnir hafa verið eitt helsta aðdráttarafl á Akranesi fyrir ferðamenn á undanförnum árum og er þessi skemmtilega frétt vonandi upphafið að góðu ferðamannaári á Skaganum.
Hér er hægt að lesa greinina á vef The Guardian