Allt íþróttastarf fellt niður ótímabundið
20.03.2020
COVID19
Í dag þann 20. mars bárust yfirlýsingar frá Heilbrigðisráðuneytinu í samvinnu við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og frá ÍSÍ og UMFÍ varðandi íþróttastarfsemi á landinu á meðan á farsótt stendur. Akraneskaupstaður og ÍA vilja að öllu leyti fara að tilmælum þessara aðila og sóttvarnarlæknis og því mun formlegt íþróttastarf á Akranesi falla niður um óákveðinn tíma.
Tilkynningu ÍSÍ og UMFÍ er að finna hér á heimasíðu ÍSÍ en í henni kemur m.a. fram að:
- hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu, þar til takmörkun skólastarfs lýkur
- hlé verði einnig gert á starfi fullorðinna sem felur í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda sem er minni en 2 metrar
- sameiginleg notkun á hverskonar búnaði til íþróttaiðkunar boltum, dýnum, rimlum, handlóðum, skíðalyftum og margs fleira án góðrar sótthreinsunar á milli notkunar einstaklinga er mjög varasöm og ekki í anda fyrirmæla um sóttvarnir
- í flestum íþróttum er nánast ómögulegt að æfa eða keppa
- tekið verði hlé í æfingum og keppnum á vegum sambandsins og aðildarfélaga þeirra á meðan samkomubann varir
- Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og UMFÍ treystir því að öll íþróttahreyfingin muni fara að þessum afgerandi tilmælum og að allt íþróttastarf falli tímabundið niður
- félög haldi áfram að þjónusta sína iðkendur með þeim hætti sem mögulegt er, með fjar- og heimaæfingum
Að teknu tilliti til þessara tilmæla sjá Akraneskaupstaður og ÍA, f.h. aðildarfélaga sinna sér ekki fært annað en að fella niður ótímabundið, allt formlegt íþróttastarf á Akranesi.