Antikmarkaður og húllafjör á Akratorgi
10.06.2016
Það er margt um að vera á Akranesi um helgina. Á Akratorgi á laugardag verður Antikmarkaður frá kl. 12 - 16. Ef þú hefur gaman af gömlum hlutum þá er um að gera sér ferð á Akratorg. Á torginu verður einnig námskeið í hvernig á að húlla eins og meistari frá kl. 14 - 16, endilega kíktu og lærðu þessa tignarlegu list. Hér á facebook er hægt að lesa nánar um húllafjörið.
Hefðbundir opnunartímar eru í Akranesvita, opið frá kl. 10-16 og á Byggðasafninu í Görðum, opið frá kl. 10-17.