Ársskýrsla framkvæmdastjórnar ÍA 2015
29.04.2016
Ársskýrsla framkvæmdastjórn Íþróttabandalags Akraness fyrir árið 2015 koma nýlega út. Í framkvæmdastjórn ÍA sitja þau Sigurður Arnar Sigurðsson formaður, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir varaformaður, Sigurður Elvar Þórólfsson ritari, Karítas Jónsdóttir gjaldkeri og Birna Björnsdóttir meðstjórnandi. Í henni má finna umfjöllun um helstu viðburði í íþróttamálum á Akranesi síðastliðið ár. Til dæmis Norðurálsmótið, Akranesleikana, Íslandsmótið í golfi, haustmót fimleikafélagsins og svo margt fleira. Ársskýrsluna er hægt að skoða nánar hér.