Atvinnuhúsnæði við Faxabraut 3 til leigu
09.04.2015
Akraneskaupstaður auglýsir til leigu atvinnuhúsnæði við Faxabraut 3. Um er að ræða 94 fm² endabil með sérinngangi og með innkeyrsludyrum. Húsnæðið er ekki fullklárað að innan og reiknað er með að væntanlegir leigjendur komi húsnæðinu í það horf sem þeir þurfa fyrir starfsemi sína.
Nánari upplýsingar veitir umsjónarmaður fasteigna í síma 433-1000 eða í gegnum tölvupóst á netfanginu kristjan.gunnarsson@akranes.is.