Auglýsing um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Smiðjuvalla
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 11. desember 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 - Smiðjuvellir, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst breyting á deiliskipulagi Smiðjuvalla.
Breyting á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 – Smiðjuvellir skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst m.a. í að landnotkunarreitir A9 og A10 eru sameinaðir reit í A8 og skipulagsákvæðum breytt, gert er ráð fyrir blandaðri landnotkun. Svæði I6 fyrir aðveitustöð rafveitu er fært til austurs í samræmi við orðinn hlut. Svæði V9 er leiðrétt til samræmis við rétta afmörkun lóðar. Engin breyting er gerð á skilmálum.
Breyting á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna Smiðjuvalla 12-14-16-18-20-22.
Breytingin felst m.a. í að sameina lóðirnar við Smiðjuvelli 12-22 í eina lóð. Sameinuð lóð er ætluð sem athafnalóð fyrir léttan iðnað, þjónustu og skrifstofur.
Breytingatillögurnar verða til kynninga í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is frá og með 5. mars n.k. til og með 28. apríl 2019.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillögurnar til 28. apríl nk. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is.
Hér að neðan má sjá skipulagsuppdrætti ofangreinds aðal- og deiliskipulags.