Opið fyrir styrkumsóknir til menningar- og íþróttaverkefna
30.10.2018
Akraneskaupstaður auglýsir eftir styrkumsóknum til menningar- og íþróttaverkefna á árinu 2019. Við mat og afgreiðslu styrkja til menningarverkefna verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni sem vinna að markmiðum Menningarstefnu Akraness sem var samþykkt fyrr á árinu. Við mat og afgreiðslu styrkja til íþróttaverkefna verður lögð áhersla á að styrkja verkefni sem efla íþróttastarf á Akranesi. Umsóknarfrestur er til og með 16. desember.