Fara í efni  

Bæjarráð Akraness samþykkir styrkveitingu til KFÍA

Ljósmynd: KFÍA
Ljósmynd: KFÍA

2. flokkur karla Á fundi bæjarráðs Akraness þann 10. október síðastliðinn samþykkti bæjarráð Akraness tillögu Rakelar Óskarsdóttur bæjarfulltrúa um að veita KFÍA styrk að fjárhæð 1,0 m.kr. vegna árangurs meistaraflokks og annars flokks karla í knattspyrnu í ár. Meistaraflokkur karla sigraði Inkasso deildina með 48 stigum og fara sem sigurvegarar í Pepsi deildina að ári.  Annar flokkur karla varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 13 ár með 42 stig í A-riðli Íslandsmótsins. 

Bæjarráð óskar KFÍA innilega til hamingju með árangurinn á árinu.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00