Bæjarstjórnarfundur 10. október
07.10.2017
1261. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. október kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Dagskrá fundarins má nálgast hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn 7. október kl. 10.30.
- Björt framtíð að Smáraflöt 1, sunnudaginn 8. október kl. 20.00.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 7. október kl. 11.00.
- Frjálsir með Framsókn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, mánudaginn 9. október kl. 20.00.