Bæjarstjórnarfundur 11. apríl
07.04.2017
1252. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 11. apríl kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Dagskrá fundarins má nálgast hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn 8. apríl kl. 10.30.
- Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn 10. apríl kl. 20.00.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 8. apríl kl. 11.00.
- Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara,gengið inn frá palli, mánudaginn 10. apríl kl. 20.00.