Bæjarstjórnarfundur 11. október
07.10.2016
1241. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 11. október kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
DAGSKRÁ FUNDARINS MÁ NÁLGAST HÉR
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn 8. október kl. 10.30.
- Björt framtíð að Smáraflöt 1, Stillholti 16-18, mánudaginn 10. október kl. 20.00.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð Stillholti 16 - 18, laugardaginn 8. október kl. 11.00