Bæjarstjórnarfundur 27. mars
24.03.2018
1271. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 27. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Dagskrá fundarins má skoða hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Garðakaffi, laugardaginn 24. mars kl. 10.30.
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 24. mars kl. 11.00.
- Frjálsir með framsókn að Vesturgötu 32, mánudaginn 26. mars kl. 20.00.
- Bæjarmálafundur Bjartrar framtíðar fellur niður.