Bæjarstjórnarfundur
08.03.2019
Fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 12. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Dagskrá fundarins er aðgengileg hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, mánudaginn 11. mars kl. 20:00.
- Framsókn og frjálsir í Stúkuhúsinu, mánudaginn 11. mars kl. 20:00.
- Sjálfstæðisflokkurinn á Gamla Kaupfélaginu að Kirkjubraut 11, laugardaginn 9. mars kl. 11:00.