Bæjarstjórnarfundur 9. febrúar
05.02.2016
1227. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. febrúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
DAGSKRÁ FUNDARINS MÁ NÁLGAST HÉR
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn 6. febrúar kl. 10.30.
-
Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 8. febrúar kl. 20.00.
-
Björt framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 8. febrúar kl. 20.00.
-
Bæjarmálafundur Samfylkingarinnar fellur niður af óviðráðanlegum orsökum laugardaginn 8. febrúar.