Breið þróunarfélag - framhald á samstarfi Brims og Akraneskaupstaður
Brim og Akraneskaupstaður ánægð með árangur af samstarfinu
um Breið þróunarfélag og semja um framhald
Brim hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til næstu þriggja og hálfs ára eða til loka árs 2026.
Breið þróunarfélag var stofnað í júlí 2020 og eru aðilar sammála um að verulegur og jákvæður árangur hafi verið af samstarfinu frá stofnun þess. Þann árangur má m.a. sjá í uppbyggingu nýsköpunarseturs og nýjum störfum sem hafa skapast á Akranesi í ýmsum greinum en þó aðallega rannsóknum og þróun. Varðandi þróun Breiðarinnar liggja fyrir niðurstöður hugmyndasamkeppni og vinningstillaga sem aðilar eru sammála um að leggja til grundvallar framtíðaruppbyggingu á svæðinu.
Akraneskaupstaðar og Brim eru sammála um að næsti áfangi samstarfsins um Breið þróunarfélag skuli gilda frá undirritun samkomulags þessa til ársloka 2026. Eftirfarandi atriði eru sameiginleg markmið á árunum 2023 – 2026:
- Áfram verði unnið að því að efla starfsemi Breiðar þróunarfélags sem vettvangs nýsköpunar og frumkvöðlastarfs þar sem áhersla verður m.a. lögð á rannsóknir og nýtingu auðlinda hafsins, aðgerðir gegn súrnun sjávar og aðgerðir í loftslagsmálum til að mæta markmiðum Íslands í loftslags- og umhverfismálum.
- Sameiginlega verði unnið að breytingum á aðalskipulagi Breiðarinnar og nýju deiliskipulagi á grundvelli vinningstillögunnar „Lifandi samfélag við sjó“ sem unnin var af arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu. Það er markmið aðila að skipulagsvinnu verkefnisins ljúki á árinu 2025.
Framkvæmdastjóri félagsins er Valdís Fjölnisdóttir og í stjórn sitja: Gísli Gíslason, starfandi stjórnarformaður, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims.