Breyttir opnunartímar safna á Akranesi
04.01.2016
Breyttir opnunartímar hjá eftirfarandi stofnunum Akraneskaupstaðar tóku gildi 1. janúar 2016:
Bókasafn Akraness
- Mánudaga til föstudaga frá kl. 12-18.
- Laugardaga frá kl. 11-14 (október til apríl).
- Þriðjudaga frá kl. 10-12 fyrir skólahópa.
Svöfusalur verður áfram opinn fyrir handhafa aðgangslykla. Auk þess verður norðurinngangur safnsins að öllu jöfnu opinn frá kl. 8 yfir vetrarmánuðina, fyrir þá sem vilja nýta sér lesaðstöðu í Svöfusal.
Héraðsskjalasafn Akraness
- Mánudaga til föstudaga frá kl. 13-15.
Ljósmyndasafn Akraness
- Mánudaga til föstudaga frá kl. 13-15 ásamt opnum vinnufundum sem auglýstir eru sérstaklega.
Byggðasafnið í Görðum
- Byggðasafnið í Görðum er lokað frá 1. janúar til og með 14. maí. Tekið er á móti hópum og fara pantanir í gegnum netfangið museum@museum.is eða í síma 431-5566.