Daglegir tónleikar í Akranesvita í sumar
09.06.2016
Á virkum dögum í sumar verður boðið upp á daglega tónleika í Akranesvita. Fram koma 14-16 ára nemendur við Tónlistarskólann á Akranesi sem spila á þverflautu, blokkflautu, klarinett og gítar. Fyrstu tónleikar hvers dags hefjast kl. 13:30 og eru endurteknir á heila og hálfa tímanum, seinustu kl. 15:30.
Fyrstu þrjár vikurnar munu eftirfarandi stúlkur koma fram:
- 7.-10. júní Antonía Líf Sveinsdóttir, þverflauta
- 13.-16. júní Heiður Dís Kristjánsdóttir, þverflauta
- 20.-24. júní Bára Valdís Ármannsdóttir, þverflauta
Við hvetjum Skagamenn sem og aðra gesti til að koma sem oftast við og njóta fallegra tóna.