Dagskrá 17. júní á Akranesi
14.06.2016
Glæsileg hátíðardagskrá er fyrir alla fjölskylduna á 17. júní. Dagurinn hefst með þjóðlegum morgni á Byggðasafninu þar sem gestir í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning. Sýningin Brúðir opnar í Guðnýjarstofu og ýmislegt verður gert fyrir börnin, s.s. andlitsmálun og teymt verður undir börnin. Aðgangur er ókeypis á Byggðasafnið þennan dag.
Skrúðganga er frá Brekkubæjarskóla að Akratorgi kl. 14.00 og er hátíðardagskrá á Akratorgi frá kl. 14.15. Lína Langsokkur stígur á stokk kl. 16 og margt fleira skemmtilegt verður gert. Hoppukastalar og sprell verður á Merkurtúni kl. 14-18.