Lokið - Flóahverfi 1.áfangi - óskað eftir tilboðum
26.05.2020
Útboð
Akraneskaupstaður, Veitur ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í malbikun gatna og vinnu við lagnir í götum í Flóahverfi 1. áfanga á Akranesi. Vegna fjölgunar lóða í hverfinu er um að ræða ýmsa vinnu við lagnir í hverfinu, lengingu botnlangagötu og malbikun yfirborðs gatna. Skila skal verkinu eigi síðar en 15. október 2020.
Nokkrar stærðir:
- Malbik á götur 4.400 m²
- Fráveitulagnir 210 m
- Kaldavatnslagnir 200 m
- Hitaveitulagnir 750 m
Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. júní 2020 kl. 11:05.