Gabríel Ísak Rauðhærðasti Íslendingurinn 2018
07.07.2018
Hinn 15 ára gamli Skagamaður, Gabríel Ísak Valgeirsson, var í dag valinn Rauðhærðasti Íslendingurinn 2018 en valið var kunngjört á Akratorgi þar sem fram fór fjölskylduskemmtun á Írskum dögum. Dómnefndin var skipuð þremur starfsmönnum Gaman ferða sem bjóða einmitt sigurvegaranum flug til Dublin fyrir tvo. Margt var um manninn og fjölbreytt skemmtiatriði á dagskrá en Írskir dagar eru nú haldnir í 19. skipti. Veður var með besta móti. Þó rignt hafi eftir hádegi varð veður sífellt betra og betra og um fjögur leitið skein sólin á hátíðargesti sem kunnu vel að meta.