Guðlaug opnar 17. desember
17.12.2020
Ákveðið hefur verið að opna Guðlaugu aftur frá og með 17. desember og yfir hátíðarnar. Opnunartími verður sem hér segir:
- 17. til 22. desember frá kl. 12:00-20:00.
- 23. desember frá kl. 10:00-16:00.
- 24. desember frá kl. 10:00-13:00.
- 27. til 30. desember frá kl. 12:00-20:00.
- 31. desember frá kl. 10:00-15:00.
Við biðjum fólk um að sýna tillitsemi og fylgja eftirfarandi leiðbeiningum. Við erum öll almannavarnir!
- Að gestir láti vita af sér við komu í Guðlaugu og við skráum niður nafn/nöfn á einstaklingum. Nóg er taka eitt nafn ef um hóp er að ræða
- Gestir eru á eigin ábyrgð.
- Gestir skulu sýna virðingu og gæta fjarlægðarmarka.
- Hámark 10 manns í einu (einstaklingar fæddir 2005 eða seinna eru ekki taldir með)
- Gestir skulu sýna skilning, þolinmæði og biðlund ef það er ekki hægt að gæta fjarlægðar.
- Gestir skulu setja sér tímamörk sem miðast við 30 til 60 mínútur.