Hvernig hefur þjónusta bæjarins reynst þér?
10.03.2020
Akraneskaupstaður hefur ráðist í verkefni, í samstarfi við Capacent, sem miðar að því að bæta þjónustu og skilvirkni í rekstri og starfsemi sveitarfélagsins. Ráðgjafar Capacent vinna nú að greiningu sem er fyrsta skref verkefnisins. Í því felst meðal annars að fá innsýn í upplifun notenda þjónustunnar, það er íbúa og hagsmunaaðila.
Sérstakt eyðublað til ábendinga hefur verið opnað í þessum tilgangi og verður opið frá 10. til 30. mars.
Þín skoðun, reynsla og upplifun skiptir okkur máli!