Íbúaþing um lærdómssamfélagið Akranes
Þann 2. október næstkomandi verður haldið íbúaþing sem hefur fengið heitið „Lærdómssamfélagið Akranes" og verður haldið í húsakynnum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þingið mun fjalla um mennta- og frístundamál og hvað felst í því að búa í lærdómssamfélagi. Boðið verður upp á stutta fyrirlestra, málstofur og svo í lokin verður farið í umræður í hópum. Skráning hefur verið opnuð og mikilvægt er að þátttakendur skrái sig og velji tvær málstofur sem þeir vilja hlýða á. Fundarstjóri þingsins er Ársæll Már Arnarsson prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hér er viðburðurinn á facebook.
Dagskrá íbúaþingsins:
17:00 Setning þingsins
17:10 Oddný Sturludóttir menntunarfræðingur á menntavísindasviði HÍ
17:45 Viktor Elvar Viktorsson íbúi, foreldri og fyrrum nemandi
18:00 Málstofur ( hver málstofa er í 15 mínútur og velja þátttakendur tvær við skráningu)
- Grunnskóli: Framúrskarandi skólaumhverfi - markþjálfun og útikennsla.
- Leikskóli: Styrkleikar leikskólanna á Akranesi - staðan og framtíðin.
- Frístund: Tómstundamenntun og óformlegt nám.
- Tónlistarskóli: Tónlist fyrir alla.
- Fjölbrautaskóli Vesturlands: FVA og framtíðin.
- Íþróttabandalag Akraness: ÍA og samfélagið.
18:45 Matarhlé. Boðið verður upp á súpu og brauð.
19:15-21:00 Umræður á borðum og samantekt.