Uppfært- Innritun í leikskóla lokið
19.03.2019
Innritun barna í leikskóla á Akranesi fyrir komandi skólaár er nú lokið. Foreldrar hafa fengið tölvupóst um innritun og eru þau beðin um að staðfesta leikskólaplássið við leikskólastjóra innan 7 daga. Leikskólastjóri gefur einnig nánari upplýsingar um leikskólann, hvenær vistun getur átt sér stað og hvernig aðlögunartíma verður háttað.