Írskir dagar á Akranesi 30. júní til 3. júlí
23.06.2016
Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir í 17 sinn dagana 30. júní til 3. júlí næstkomandi. Hátíðin hefur fest sig í sessi í gegnum árin og er einn af hápunktum sumarsins á Akranesi. Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár enda fjölmargir viðburðir orðnir fastir liðir hjá íbúum sem og gestum. Líkt og önnur ár eru keppnir eins og rauðhærðasti Íslendingurinn og best skreytta húsið eða írskasta húsið og í verðlaun í báðum flokkum eru ferðir fyrir tvo til Dublin á Írlandi. Skráning í allar keppnir á Írskum dögum skal sendast á netfangið irskirdagar@akranes.is. Þá er bæjarbúum jafnframt bent á að tilkynna um götugrill sín á sama netfang. Heppnir grillarar fá óvænta uppákomu.
Skemmtum okkur saman á Írskum dögum!