Írskir dagar formlega settir
Bæjarstjórinn á Akranesi, Regína Ásvaldsdóttir setti Írska daga 2015 í gærkvöldi og fékk til liðs við sig fjölmennan hóp leikskólabarna sem sungu írska lagið Efemía, í þýðingu Jónasar Árnasonar. Strax í kjölfar setningarinnar hófust tónleikarnir Litla Lopapeysan en þar kom fram ungt og efnilegt tónlistarfólk á Akranesi. Í aðdraganda tónleikanna voru haldnir söngtímar sem tugir barna og unglinga tóku þátt, í þeirri von að fá að syngja á tónleikunum.
Þessi bæjarhátíð Skagamanna fagnar sínu 16. ára afmæli og hefur vaxið og dafnað með hverju árinu. Dagskrá hátíðarinnar er að venju fjölbreytt en þar má nefna götugrill og tónleika á hafnarsvæðinu á föstudagskvöldinu þar sem landsþekktir tónlistamenn stíga á svið, meðal annars María Ólafsdóttir og svo tónleikarnir Lopapeysan á laugardagskvöldinu þar sem fram koma Sálin, Bubbi og Dimma, Geirmundur Valtýsson, Friðrik Dór, Salka Sól, Dikta og fleiri.
Fjölmargar keppnir verða á Írskum dögum, meðal annars bryggjugolf, dorgveiðikeppni, sandkastalakeppni og keppnin um írskasta hreiminn svo fátt eitt sé nefnt. Rauðhærðasti Íslendingurinn er fastur liður og jafnfram sá vinsælasti í dagskránni og verður hann valinn á laugardaginn.
Endilega fylgist með dagskrá og skoðið myndir á facebooksíðu Írskra daga.