Fara í efni  

Írskir vetrardagar fara fram 16.-18. mars

Grænt Akratorg á Írskum vetrardögum 2016
Grænt Akratorg á Írskum vetrardögum 2016

Írskir vetrardagar verða haldnir 16.-18. mars næstkomandi í annað sinn. Á árinu 2015 ákvað Menningar- og safnanefnd kaupstaðarins að koma fram með þessa nýjung í menningarlífi Akraness. Markmiðið er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum menningu, bókmenntir og tónlist. Meðal þess sem er á boðstólnum í ár er sýningin Keltnesk arfleifð á Vesturlandi en þar er m.a. fjallað um landnám kelta, keltneska kristni, skyldleika íslensku og keltnesku, Örnefni, Donald Trump og fleira. Þá mun írska tónlistarkonan Elaine Ní Cuana heimsækja leikskóla kaupstaðarins og kynna írska tónlist og hljóðfæri fyrir börnunum. Þar að auki mun Bæjarlistamaður Akraness 2016, Slitnir strengir, halda tvenna útgáfutónleika en það er nú þegar uppselt á fyrri tónleika þeirra. Auk fyrrgreinds er ljósmyndasýning, leikrit, dansleikur og fleira á boðstólnum á Akranesi þessa daga.

Nánari upplýsingar eru í viðburðadagatali á heimasíðu Akraneskaupstaðar


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00