Íþróttamiðstöð á Jaðarsbökkum - Jarðvinna ÚTBOÐ
06.08.2021
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar á íþróttamiðstöð á Jaðarsbökkum.
Verkið felst í uppsetningu á vinnugirðingu um vinnusvæðið með göngu- og aksturshliðum, breytingum á vatnsveitu-, hitaveitu-, rafveitu- og frárennslislögnum í jörðu, upprif malbiks og stétta, uppgröft fyrir mannvirki og fyllingu undir sökkla.
Skila skal verkinu 1. mars 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá mánudeginum 9. ágúst 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits:
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir
kl. 11:00 þriðjudaginn 14. september 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs