Ítrekuð skemmdarverk við sturtur á Langasandi
24.07.2017
Borið hefur á ítrekuðum skemmdarverkum við sturtur á Langasandi undanfarið, þar hafa mottur verið rifnar upp og fjarlægðar. Starfsmenn Akraneskaupstaðar líta málið alvarlegum augum þar sem mikil slysahætta skapast því yfirborð undir sturtunum verður mjög hált. Einnig standa boltar upp úr yfirborðinu sem nýttir eru sem festingar fyrir motturnar.
Vinsamleg tilmæli til íbúa að láta vita ef þeir verða varir við að verið sé að fjarlægja motturnar.