Jarðvegsframkvæmdir við Asparskóga 1-9
17.02.2021
Framkvæmdir
Veitur í samstarfi með Akraneskaupstað og fleiri ætla að leggja veitulagnir og jarðvegsskipta undir gangstétt og gangstíg við Asparskóga við lóðir nr. 1 – 9. Áætlaður framkvæmdartími er febrúar til júlí 2021.
Það má gera ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski. Viðeigandi merkingar verða settar upp á vinnusvæðinu og biðjum við alla vegfarendur að virða lokanir á vinnusvæðinu.
Frekari upplýsingar og mynd af framkvæmdasvæðinu má finna hér: www.veitur.is/framkvaemdasja/skogarhverfi-akranesi