Kjörskrá vegna forsetakosninga 25. júní 2016
16.06.2016
Forsetakosningar fara fram 25. júní n.k. Kjörskrá hefur verið lögð fram í bæjarstjórn og samþykkt. Kjörskráin er opin almenningi til skoðunar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, á skrifstofutíma frá og með 15. júní fram til kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar, netfang stjornsysla@akranes.is.
Athygli er vakin á því að hægt er að gera leiðréttingar á kjörskrá allt til kjördags ef við á.