Kvennahlaup og Hreyfivika framundan á Akranesi
02.09.2021
Heilsueflandi samfélag
Kvennahlaup ÍSÍ 2021 verður haldið 11. september nk. en í meira en þrjá áratugi hefur Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ stuðlað að lýðheilsu kvenna og samstöðu. Hlaupið verður frá Akratorgi kl. 11:00 og verða tvær hlaupalengdir í boði, 2 km og 5 km.
Nánari upplýsingar um skráningu og hlaupið er að finna hér.
Dagskrá Hreyfiviku ÍSÍ og Evrópu #beactive
Dagana 20. September til 30. September verður Hreyfivika ÍSÍ haldinn en að þessu sinni verður hún með breyttu sniði.
ÍA og Heilsueflandi samfélag Akranes munu bjóða upp á margvíslega dagskrá þessa daga sem hvetur fólk til hreyfingar og hugsar til langtíma um heilsuna. Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar hér og á Facebook síðu.