Kynningarfundur um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis
11.02.2016
Kynningarfundur um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis verður haldinn þriðjudaginn 16. febrúar í Tónbergi kl. 20.00.
Markmið fundarins er að kynna fyrir íbúum og hagsmunaaðilum tillögu að breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis sem felur meðal annars í sér að sameina og stækka fiskþurrkun HB Granda við Breiðargötu. Tillagan hefur áður verið kynnt á almennum íbúafundi þann 28. maí 2015. Á fundinum verður tillagan kynnt að nýju m.t.t. þeirra breytinga sem orðið hafa á tillögunni auk umhverfisskýrslu og þeirra markmiða sem HB Grandi hefur sett varðandi umhverfismál.