Kynningarfundur vegna breytingar á deiliskipulagi Breiðarsvæðis - Bárugata 15
03.04.2023
Skipulagsmál
Fimmtudaginn 13. apríl næstkomandi verður haldinn kynningarfundur að Dalbraut 4 og hefst hann kl. 17.
Vinnslutillaga: Deiliskipulag Breiðarsvæðis
Breytingin nær eingöngu til lóðar við Bárugötu 15. Í breytingunni felst að breyta húsnæði að hluta til í fjölbýlis hús með 8 íbúðum, húsið verður hækkað í fjórar hæðir. Nýtingarhlutfall lóðar verður 1,6.
Eftir kynninguna mun skipulags- og umhverfisráð ljúka gerð tillögu og leggja fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagstillögur verður frestur til að gera athugasemdir við þær minnsta kosti 6 vikur sbr. ákvæði skipulagslaga.
Ábendingar og sjónarmið þurfa að vera skriflegar og berast fyrir föstudaginn 21. apríl í þjónustuver Akraneskaupstaðar Dalbraut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is
Skipulagsfulltrúi skipulags- og umhverfissviðs