Kynningarfundur vegna skipulagsverkefna Skógarhverfis, Lækjarbotna, skógræktar og útivistarsvæðis
Kynningafundur vegna eftirtalinna skipulagsverkefna verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, 3. hæð, þriðjudaginn 23. júní 2020 kl.17:00.
Vinnslutillaga: Breyting á Aðalskipulagi vegna stækkunar Skógahverfis og Lækjarbotna, skógræktar og útivistarsvæðis.
Aðalskipulagsbreytingin tekur til opinna svæða norðan og austan Skógahverfis, verslunar- og þjónustusvæðis við Garðalund sem verður fellt út og stækkunar Skógahverfis til norðurs.
Vinnslutillaga: Deiliskipulag Lækjarbotna (Garðalundur og skógræktar- og útivistarsvæði norðan og austan Skógahverfis).
Nýtt deiliskipulag Garðalundar verður víðtækara en gildandi skipulag. Skipulagsmörk verða færð út og munu ná norður og vestur yfir skógræktarsvæði í Klapparholti. Gerð er grein m.a. fyrir afmörkun skógræktar og opinna svæða, aðkomu ökutækja, útivistarstígum, leiksvæðum, matjurtargörðum, o.fl.
Vinnslutillaga: Nýtt deiliskipulag Skógahverfis, áfangi 3A.
Deiliskipulag áfanga 3A gerir m.a. ráð fyrir tiltölulega þéttri byggð einbýlis- og raðhúsa á einni til tveim hæðum, alls 39 íbúðum. Gert er ráð fyrir opnu svæði með lækjarfarvegi sem verður hluti blágrænna ofanvatnslausna og nýtist sem útivistarsvæði.
Eftir kynninguna mun skipulags- og umhverfisráð ljúka gerð tillagnanna og leggja fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagstillögur verður frestur til að gera athugasemdir við þær minnsta kosti 6 vikur sbr. ákvæði skipulagslaga.
Tillaga deiliskipulags Lækjarbotna:
- Tillaga deiliskipulags Lækjarbotna (Garðalundur og skógræktar- og útivistarsvæði norðan og austan Skógahverfis) - drög 1
- Tillaga deiliskipulags Lækjarbotna (Garðalundur og skógræktar- og útivistarsvæði norðan og austan Skógahverfis) - drög 2
- Tillaga deiliskipulags Lækjarbotna (Garðalundur og skógræktar- og útivistarsvæði norðan og austan Skógahverfis) - greinagerð
- Tillaga deiliskipulags Lækjarbotna (Garðalundur og skógræktar- og útivistarsvæði norðan og austan Skógahverfis) - skipulagsmörk
Skógarhverfi áfangi 3A:
- Tillaga nýtt skipulag Skógarhverfis, áfangi 3A - skýringaruppdráttur
- Tillaga nýtt skipulag Skógarhverfis, áfangi 3A - greinagerð
- Tillaga nýtt skipulag Skógarhverfis, áfangi 3A - skipulagsuppdráttur