Lausir reitir í kartöflugörðum á Akranesi
18.05.2016
Reitir í kartöflugörðum Akraneskaupstaðar eru lausir til útleigu fyrir sumarið 2016. Í boði eru 100 fermetra reitir sem kosta kr. 4.000 og 50 fermetra reitir sem kosta kr. 2.000. Garðarnir verða tilbúnir til notkunar 26. maí n.k. Athugið að takmarkað magn er til úthlutunar og er eingöngu fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi.
Þeim sem hafa áhuga á að leigja sér reit eru beðnir um að hafa sambandi við þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, í síma 433-1000 eða á akranes@akranes.is.