Laust starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra í leikskólanum Teigaseli
Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Teigasel frá 1. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og kennarasambands Íslands.
Teigasel er þriggja deilda leikskóli sem býður upp á opinn efnivið í þeim tilgangi að hvetja barnið til gagnrýnnar hugsunar og örva um leið sköpunar- og leikgleði þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfsins.
- Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.
- Hefur yfirumsjón með samskiptum við sérfræðiþjónustu, prófanir og vinnu með snemmtæka íhlutun í málörvun.
- Sinnir þjálfun einstaka barna, og veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
- Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
- Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
- Vera faglegur leiðtogi.
- Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari.
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
- Reynsla af stjórnun og sérkennslu er æskileg.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Færni í samskiptum og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góð íslensku- og tölvukunnátta.
Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið teigasel@akranes.is eða í síma 433-1280.