Laust starf bókara í fjármáladeild
16.02.2021
Akraneskaupstaður auglýsir eftir bókara í fjármáladeild. Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega 7500 íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð. Sveitarfélagið er meðal stærstu vinnuveitenda á Akranesi og starfa hjá bænum um 600 manns.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón og vinnsla á bókhaldi Akraneskaupstaðar og stofnana þess
- Afstemming á bankareikningum, sjóðum og efnahagsreikningum
- Tekur þátt í uppgjörsvinnslu, ársreikninga- og fjárhagsáætlunargerð
- Samskipti við stofnanir, starfsmenn o.fl.
- Önnur tengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf auk viðbótarmenntunar og/eða mjög mikil reynsla í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Þekking og reynsla af bókhaldskerfinu Microsoft Dynamics Navision er kostur
- Færni í upplýsingatækni er kostur
- Þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu er kostur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristjana Helga Ólafsdóttir deildarstjóri fjármála í síma 433-1000.