Laust starf leikskólakennara í leikskólanum Teigaseli
Leikskólakennara óskast til starfa í leikskólann Teigasel. Um er að ræða 100% stöðu til fastráðningar sem er laus frá 8. ágúst 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Teigasel er þriggja deilda leikskóli sem býður upp á opinn efnivið í þeim tilgangi að hvetja barnið til gagnrýnnar hugsunar og örva um leið sköpunar- og leikgleði þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og góð íslenskukunnátta
Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 27. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið teigasel@akranes.is eða í síma 433-1280.