Laust starf ritara í Brekkubæjarskóla
02.03.2021
Laust starf ritara í Brekkubæjarskóla.
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 460 talsins, en starfsmenn um 100.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn og sérhæfð ritarastörf s.s. símsvörun og upplýsingagjöf
- Pantanir og innkaup
- Samskipti vegna viðhalds á húsnæði og innanstokksmunum
- Skjalavarsla
- Skipulag á forföllum
- Heldur utan um nemenda- og starfsmannaskrá í Mentor og Office
- Heldur utan um skráningu nemenda í Matartorg
- Ýmis verkefni í samráði við stjórnendur
Hæfnikröfur
- Reynsla af ritarastörfum í skóla
- Faglegur metnaður, þjónustulipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð sem og frumkvæði í starfi
- Þekking á tölvukerfunum Mentor, Office365 og Matartorgi æskileg
- Íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100% og er vinnutími frá 7:45-15:45. Starfið er laust frá 1. apríl 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri í síma 433-1300.
Hér er sótt um starfið rafrænt í gegnum þjónustugátt Akraneskaupstaðar.