Laust starf sálfræðings við sérfræðiþjónustu skóla- og frístundasviðs
Sálfræðingur óskast til starfa við sérfræðiþjónustu skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar frá 1. ágúst 2016. Laun eru í samræmi við kjarasamningi Sálfræðingafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga.
Sérfræðiþjónusta skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerð nr. 584/2010. Starfsmenn sérfræðiþjónustu eru sálfræðingar, talmeinafræðingur, iðjuþjálfi og deildarstjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veitir starfsfólki leik- og grunnskóla stuðning við að efla skóla m.a. með fræðslu og ráðgjöf vegna kennslu og umönnunar nemenda, sérkennslu, starfshátta skóla, nýbreytni- og þróunarstarf og starfsumhverfis
- Veitir ráðgjöf og fræðslu/námskeið til foreldra
- Sinnir athugunum, greiningu og ráðgjöf vegna nemenda. Sinnir einnig eftirfylgni og mati á árangri í samstarfi við starfsfólk og foreldra
- Er þátttakandi í barnateymi Akraness í samstarfi við HVE
- Tekur þátt í stefnumótunarvinnu sem tengist málaflokknum og felur meðal annars í sér að móta þjónustuna í samræmi við reglur á hverjum tíma
Menntun og hæfniskröfur
- Sálfræðimenntun og leyfi til að starfa sem slíkur hér á landi með leyfi landlæknis
- Reynsla af greiningu og ráðgjöf á þroska- og hegðunarvanda barna og ungmenna skilyrði
- Þekking og reynsla af starfi sálfræðings sérfræðiþjónustu skóla er kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða
- Færni og sveigjanleiki í samskiptum
- Faglegur metnaður
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 28. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svala Hreinsdóttir í tölvupósti á netfangið skoliogfristund@akranes.is eða í síma 433-1000.