Laust starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar
Starfsmann (karl) vantar í 100% starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Um er að ræða framtíðarstarf sem felst m.a. gæslu í búningsherbergjum karla og þrifum og afgreiðslu í íþróttamannvirkjum. Unnið er á tvískiptum vöktum og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.
Hæfnisviðmið:
- Umsækjandi þarf að standast hæfnipróf sundstaða
- Reynsla af þjónustustörfum
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni
- Stundvísi og jákvæðni
Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um rafrænt í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl. Nánari upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar í tölvupósti á netfangið hordur.kari.johannesson@akraneskaupstadur.is eða í síma 433-1100.
Athuga: Til að öðlast rétt á atvinnuviðtali þarf umsækjandi að standast hæfnispróf sundstaða sem sett verður upp áður en atvinnuviðtöl hefjast.