Lýsing á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Grenja
07.03.2018
Skipulagsmál
Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 27. febrúar 2018 að auglýsa lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Grenja H3 hafnarsvæði samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Fyrirhuguð er stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður deiliskipulag fyrir reitinn kynnt.
Hægt er að nálgast lýsinguna hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18. Ábendingum varðandi tillögugerðina eiga að vera skriflegar og berast í síðasta lagi 21. mars næstkomandi í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is.
Hér má nálgast skipulagslýsinguna